Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi, sækist eftir 1. sæti í prófkjöri flokksins í sveitarfélaginu. Þessu greindi hún frá í færslu á Facebook rétt í þessu.Berglind er formaður byggðaráðs Múlaþings og formaður Sambands sveitarfélaga á Austurlandi. Hún var varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi á árunum 2021 til 2025.Berglind telur gríðarleg tækifæri felast í því að atvinnumál heyri beint undir sveitarstjóra í kjölfar skipuritsbreytinga. Hún segir áherslu lagða á gott samtal við fyrirtæki og fjárfesta. „Til að grípa og styðja við uppbyggingartækifæri í öllu Múlaþingi.“Berglind Harpa Svavarsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Múlaþingi.Aðsent / Sjálfstæðisflokkurinn Múlaþingi