Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Fólk geti verið fullvisst um að öryggishnappar virki

Öryggismiðstöðin hefur síðustu ár uppfært alla öryggishnappa á þeirra vegum svo þeir tengist í gegnum 4G-net. Áður tengdust hnapparnir 2G eða 3G-neti og hefðu því orðið óvirkir þegar slökkt verður á síðustu 3G-sendunum í mars.Lokunin getur haft áhrif á ýmsan búnað, eins og gömul símtæki, posa og greiðslulausnir sem byggjast á 2G eða 3G.Ómar Örn Jónsson, framkvæmdastjóri velferðarlausna hjá Öryggismiðstöðinni, segir fyrirtækið hafa unnið að uppfærslu á öryggishnöppum síðustu ár.„Þetta náttúrulega kom ekki alveg að himnum ofan, þessi breyting að 2G og 3G yrði lokað, þannig að í rauninni fyrir bara tveimur, þremur árum síðan þá skiptum við um búnað og fórum að setja upp 4G-hnappa. Síðustu misseri hafa allir nýir hnappar verið 4G. Við kláruðum síðan útskipti á eldri hnöppum á síðasta ári. Þann
Fólk geti verið fullvisst um að öryggishnappar virki

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta