Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tuttugu hið minnsta hafa farist í vetrarhörkum í Bandaríkjunum

Mikil snjókoma á bandarískan mælikvarða, slydda og frostrigning hafa einkennt veðrið þar síðustu daga. Að minnsta kosti tuttugu hafa látið lífið í kuldanum. Þrjátíu stiga frosti hefur verið spáð í Michigan og víða um Bandaríkin er ófært og samgöngur í lamasessi. Ríkisstjóri New York segir þetta mesta kulda þar í áraraðir.„Einhvers konar heimskautaveður hefur gengið yfir ríkið okkar og mörg önnur ríki í landinu. Snjókoman sem hefur verið spáð er nú hafin en þetta er svakalegt. Kuldinn nístir inn að beini og veðrið er hættulegt,“ segir Kathy Hochul, ríkisstjóri New York.Tuttugu hið minnsta hafa farist í miklum vetrarhörkum í Bandaríkjunum síðustu daga. Hundruð þúsunda hafa verið án rafmagns og viðvaranir ná til yfir helmings landsmanna.Fjöldi dauðsfalla er rakinn til veðursins, þar af átta,
Tuttugu hið minnsta hafa farist í vetrarhörkum í Bandaríkjunum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta