Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sala á bensíni minnkar

Innflutningur á blýlausu bensíni hefur dregist saman síðustu ár. Rafbílar eru farnir að saxa á bensínsöluna, segir sviðsstjóri hjá Umhverfis- og orkustofnun.Fjórtán prósent allra fólksbíla í landinu eru hreinir rafbílar. Fólksbílum sem hvorki eru tvinn- eða tengiltvinnbílar hefur fækkað um 50 þúsund síðustu ár svo innflutningur á bensíni hefur tekið breytingum.Langstærstur hluti fólksbíla er knúinn af blýlausu bensíni en mest var flutt inn af því árið 2006. Í hruninu varð samdráttur og svo frá 2018 til 2019, fyrir COVID-19-faraldurinn, varð mikill samdráttur. Innflutningur á blýlausu bensíni jókst aftur árið 2022 en var langt frá því að ná sér á strik eins og fyrir faraldurinn. Þetta segja tölur frá Hagstofunni.„Fyrsta hlutann af þessum samdrætti í bensíni má eiginlega skýra á betri nýtni
Sala á bensíni minnkar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta