Stjórnvöld í Svíþjóð ætla að leggja fram umdeilt frumvarp sem gerir ráð fyrir því að sakhæfisaldur fyrir alvarlega glæpi verði lækkaður úr 15 árum í 13. Fangelsisdómar yrðu þá heimilaðir í ákveðnum tilvikum.Gunnar Strömmer dómsmálaráðherra Svíþjóðar segir á blaðamannafundi að þetta myndi eiga við um glæpi á borð við morð, morðtilraun og alvarlegar sprengjuárásir, vopnalagabrot og nauðganir. „Hér er ekki verið að lækka almennan sakhæfisaldur,“ sagði Strömmer.Tilgangurinn með þessu frumvarpi er að berjast gegn glæpagengjum sem í auknum mæli ráða til sín börn til að fremja alvarlega glæpi, vitandi að þeirra bíður ekki fangelsisdómur ef þau nást. Í skýrslu sem kom út í janúar í fyrra var lagt til að lækka sakhæfisaldurinn í 14 ár en í september tilkynntu stjórnvöld um að þau vildu lækka hann í