Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hefur ekki gefið út hvort hún þiggi annað sætið á framboðslista Samfylkingarinnar í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar eftir að hún laut í lægra haldi gegn Pétri Marteinssyni í prófkjöri flokksins um helgina.Yrði einhver breyting á myndi ákvörðun þess efnis berast uppstillingarnefnd flokksins. Björk Vilhelmsdóttir, formaður nefndarinnar segir engar upplýsingar um slíkt hafa borist, en nefndin kemur saman í kvöld þar sem meðal annars verða rædd viðbrögð, taki Heiða ekki sætið.Róbert Marshall, aðstoðarmaður Heiðu Bjargar, sagði hana ekki hafa tekið ákvörðun og að hún myndi engin viðtöl veita að sinni.Fari svo, að Heiða þiggi ekki sæti á lista Samfylkingarinnar, færast þau sem eru í 3. - 6. sæti upp. 16 gáfu kost í sér í prófkjörinu en kosnin