Verðið á gullúnsu fór í 5.111 dollara á mörkuðum í Asíu í morgun. Únsa jafngildir 28,3 grömmum. Þar með er únsan í fyrsta sinn komin yfir 5.000 dollara. Óvissa um stöðuna í Bandaríkjunum er talin helsta ástæða hækkunarinnar síðustu vikur.Susannah Streeter, fjárfestingasérfræðingur hjá ráðgjafafyrirtækinu Wealth Club í Bretlandi, segir í samtali við AFP-fréttastofuna að gullverðið hafi hækkað afar hratt og stefni í að hækka enn meira. Ástæðan sé spenna í viðskiptum sem sé upprunnin í Bandaríkjunum og hafi vakið óróa með fjárfestum. „Fall Bandaríkjadollars spilar líka inn í. Hann hefur fengið annað högg þar sem áhyggjur fara vaxandi af áhrifum tolla, háum ríkisútgjöldum og verðbólgu á bandarískan efnahag. Það kallar á að fjárfestar endurskoði stöðu sína í Bandaríkjunum,“ segir Streeter.Grein