Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir fer að óbreyttu í fyrstu umræðu á þingi á morgun. Skiptar skoðanir eru um frumvarpið og í Þetta helst í dag er sjónum beint að þeim þáttum sem mest hefur verið deilt um, annars vegar að breyttum lágmarksskilyrðum fyrir rétti til atvinnuleysistrygginga og hins vegar styttingu bótatímabilsins, úr 30 mánuðum í 18.Frumvarp um breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar og vinnumarkaðsaðgerðir fer að óbreyttu í fyrstu umræðu á þingi á morgun. Framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Austurlandi segir ekki búið að meta áhrif breytinganna á sveitarfélögin.Í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að almenn þátttaka á vinnumarkaði sé talin ein þýðingarmesta leiðin til að koma í veg fyr