Skíðasvæðið í Bláfjöllum hefur búið við snjó- og frostleysi í vetur.Einar Bjarnason, rekstrarstjóri skíðasvæðisins, segist ekki muna eftir því að hafa áður fengið rigningu í þrjár vikur í desember.Hann segir umhleypingar í veðrinu undanfarna tvo mánuði vera óvenjulegar en vonast til þess að geta opnað svæðið sem fyrst.Hvorki hafa verið aðstæður til snjóframleiðslu, vegna hlýinda, og snjókoma hefur verið nánast engin. VORU TILBÚNIR Í OPNUN ÞEGAR HLÝINDIN BYRJUÐU Einar segir að skíðaveturinn hafi áður byrjað illa, áður hafi verið snjólaust í janúar en síðan hafi tekið við afbragðs skíðavetur þegar loksins fór að snjóa.Hann segir að í tvígang hafi starfsmenn svæðisins verið nánast klárir í fulla opnun en þá hafi hlýnað og snjórinn, sem var búið að framleiða, bráðnað.„Við vorum klárir í opn