Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Jarðneskar leifar allra gísla Hamas á Gaza fundnar

Ísraelski herinn hefur tilkynnt að búið sé að bera kennsl á líkamsleifar Ran Gvili sem var gísl Hamas á Gaza. Fjölskylda hans hafi fengið þær afhentar til að búa undir greftrun. Líkamsleifarnar voru sóttar í sérstakri aðgerð hersins í gær.Þar með er búið að afhenda líkamsleifar allra látinna gísla. Síðustu gíslarnir sem voru á lífi voru afhentir eftir að samið var um vopnahlé í október. Þar með verður hægt að fara á annað stig friðaráætlunarinnar, sem felur meðal annars í sér afvopnun Hamas og annarra palestínskra hópa. Ísraelsmenn höfðu jafnframt boðað opnun landamærastöðvarinnar í Rafah fyrir hjálpargögn.Minningarreitur um árás Hamas á Ísrael.EPA / ABIR SULTAN
Jarðneskar leifar allra gísla Hamas á Gaza fundnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta