Loðnuleit er lokið og fannst greinileg loðnuganga sem þétti sig bæði fyrir norðan og austan land. Það skýrist þó ekki fyrr en síðar í vikunni hvort nægjanleg loðna fannst til að hægt verði að auka kvótann.Mikið er í húfi því aukinn kvóti getur skilað milljörðum í þjóðarbúið. Nú þegar hefur verið gefinn út rúmlega 40 þúsund tonna kvóti en það skýrist ekki almennilega fyrr en loðnan þéttir sig og hefur hrygningargönguna umhverfis landið hve stór hrygningarstofninn er og hve mikið er óhætt að veiða. LOÐNAN ÞÉTTUST AUSTAN VIÐ LAND OG ÚTI FYRIR HÚNAFLÓA Fimm skip hófu leit fyrir viku og sigldu eftir ákveðnu leitarmynstri, bæði fyrir norðan og austan land. Tvö rannsóknarskip og þrjú veiðiskip útbúin bergmálsmælum fundu greinilega loðnugöngu sem þétti sig bæði austan við land og fyrir norðan;