Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Útlit fyrir varasamar vindhviður undir fjöllum sunnantil

Mjög hvasst verður í hviðum syðst á landinu þegar austanáttin sem hefur ríkt á landinu gæti náð stormstyrk. Búast má við mjög hvössum vindstrengjum við Mýrdalsjökul, undir Eyjafjöllum og í vestanverðum Öræfum. Þar gæti vindur farið í allt að 35 til 40 metra á sekúndu frá hádegi í dag fram á kvöld á morgun. Því gæti verið varasamt að fara þarna um á ökutækjum sem taka á sig vind.Vegagerðin er að kanna aðstæður á vegum þegar þetta er skrifað. Hálkublettir eru á vegum þar sem búið er að meta aðstæður. Hér má sjá nýjustu upplýsingar um færð.Veðurspáin er svohljóðandi:Austan átta til fimmtán, en fimmtán til 23 við suðurströndina. Að mestu þurrt og bjart með köflum á vestanverðu landinu, annars dálitlar skúrir eða él. Hiti 0 til 6 stig, en um eða undir frostmarki á Norður- og Austurlandi.Næstu d
Útlit fyrir varasamar vindhviður undir fjöllum sunnantil

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta