Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi við Vatnsholt í Reykjanesbæ í kvöld. Einn var í húsinu þegar viðbragðsaðilar komu á vettvang og hefur verið fluttur með sjúkrabíl til Reykavíkur. Fimmtán aðrir íbúar voru fluttir af vettvangi. Búið er að slökkva eldinn.