Íslendingur í Minneapolis segir mikilvægt að íbúar taki skýra afstöðu í ljósi þeirrar ólgu sem ríkir í borginni. Hann segir andrúmsloftið í borginni vera tilfinningaþrungið en að samheldni borgarbúa sé allsráðandi.Mótmæli hafa sett svip sinn á líf borgarbúa síðustu vikur, ekki síst eftir að alríkisfulltrúar skutu tvo bandaríska ríkisborgara til bana; Renée Good í upphafi mánaðar og Alex Pretti í gær.„Það er mjög erfitt að lýsa og útskýra, en ég held að samheldnin sé það sem stendur upp úr og að fólk sé að taka sig saman og er skipulagt í öllu því sem það gerir,“ segir Karvel Ágúst Schram. Hann er með tvöfaldan ríkisborgararétt, íslenskan og bandarískan, og er búsettur í Minneapolis.Hann segir flesta íbúa hafa íhugað hvernig eigi að bregðast við ef þeir verða á vegi innflytjendalögreglunnar