Fuglavernd stendur nú fyrir árlegri garðfuglatalningu og fólk er hvatt til þess að fara út í garð og telja þá fugla sem þar er að finna.Gott getur verið að fóðra fuglana í garðinum á undan til að lokka þá að.Ólafur Einarsson, líf- og fuglafræðingur, hefur fóðrað og talið fuglana í sínum garði lengi. Hann segir auðvelt fyrir alla að stunda fuglaskoðun. HVETUR SEM FLESTA TIL AÐ TELJA FUGLANA Í GARÐINUM Markmið garðfuglatalningar Fuglaverndar er að virkja fólk til fuglaskoðunar og safna upplýsingum um fugla sem nýta sér garða landsmanna yfir vetrartímann.Ólafur segir auðvelt að stunda fuglaskoðun.„Þú þarft ekkert að fara neitt langt, þú getur verið í þínum eigin garði og horft bara út og fylgst með því sem þú sérð. Svo náttúrulega að senda tölurnar inn, eða talninguna.“Fuglarnir koma í gar