Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir samning um öryggistryggingar Bandaríkjanna í Úkraínu tilbúinn. Nú eigi aðeins eftir að finna stað og stund til að skrifa undir.Á blaðamannafundi í Vilníus, höfuðborg Litáen, sagði Zelensky að eftir undirritun yrði skjalið svo sent bandaríska þinginu og því úkraínska til staðfestingar. ÞRÍHLIÐA VIÐRÆÐUM HALDIÐ ÁFRAM Þríhliða viðræður Bandaríkjanna, Úkraínu og Rússlands voru haldnar í Abu Dhabi um helgina. Þar voru tillögur Bandaríkjamanna að friðarsamkomulagi ræddar en engin niðurstaða fékkst á fundinum. Gert er ráð fyrir að viðræðum verði framhaldið eftir viku.Aukið kapp hefur verið lagt á að ljúka stríðinu með diplómatískum hætti á síðustu mánuðum. Enn ber þó talsvert á milli um hvernig skiptingu hernumdra landsvæða í Úkraínu verður háttað. ALL