Mjög djúp og víðáttumikil lægð suðvestur af landinu þokast í austur á morgun og veldur hvassviðri og stormi syðst á landinu. Búast má við strekkingi víðast hvar annars staðar.Spár gera ráð fyrir að vindur verði á bilinu 5 til 13 metrar á sekúndu í kvöld en að hann verði allhvass við suðurströndina. Í nótt bætir svo í.Í athugasemd frá veðurfræðingi Vegagerðarinnar segir að á morgun megi búast við mjög hvössum vindstrengjum við Mýrdalsjökul, undir Eyjafjöllum og í vestanverðum Öræfum. Hviður gætu náð allt að 35 til 40 metrum á sekúndu frá hádegi á morgun og fram á þriðjudagskvöld. Þær aðstæður geta verið varasamar fyrir ökutæki sem taka á sig vind.Á morgun má annars búast við úrkomu á austanverðu landinu, í formi skúra eða élja, einkum suðaustanlands. Vestantil er aftur á móti spáð þurru og