Þúsundir söfnuðust saman í Brussel í dag til að sýna samstöðu með mótmælendum í Íran. Fjölmenn mótmæli gegn stjórnvöldum hafa verið haldin í Íran síðan í lok desember og klerkastjórnin hefur brugðist harkalega við.Fjöldi fólks liggur í valnum og yfirvöld hafa handtekið þúsundir. Yfirvöld í Íran segja að á fjórða þúsund séu látin en talið er að mun fleiri hafi fallið.Tímaritið Time hefur eftir hátt settum írönskum embættismönnum úr heilbrigðisráðuneyti Írans að allt að 30.000 hafi látið lífið í mótmælum í landinu 8. og 9. janúar.Mótmælabylgjan nær lengra en landamæri Írans þar sem fjöldi mótmæla hafa verið haldin víða um heim til stuðnings mótmælendum í Íran.Skipuleggjendur mótmælanna í Brussel í dag sögðust eiga von á um 100.000 manns í dag.Björn Malmquist, fréttamaður RÚV í Brussel, tók e