Steve Witkoff, sérstakur erindreki Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, og Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, hvöttu Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, til að opna landamærastöðina í Rafah. Það gerðu þeir á fundi þeirra þriggja í Jerúsalem í gær.Ali Shaath, formaður sérstakrar nefndar um stjórnsýslu Gaza, sagði í vikunni að landamærastöðin í Rafah yrði opnuð í báðar áttir í næstu viku. Hún er á landamærum Palestínu og Egyptalands og er mikilvægasta leiðin fyrir hjálparstofnanir til að koma hjálpargögnum inn á Gaza. Þær hafa þurft að koma hjálpargögnum inn á Gaza með öðrum leiðum samhliða lokun stöðvarinnar.Ísraelski miðillinn Ynet hefur eftir ónefndum embættismanni úr ísraelsku stjórnsýslunni að fundur Netanjahús, Witkoffs og Kushners hafi verið á jákvæðu