Hátt í 700 þúsund manns eru án rafmagns í Bandaríkjunum vegna storms sem gengur yfir landið, allt frá Nýju Mexíkó yfir á austurströndina. Neyðarástandi hefur veri lýst yfir í að minnsta kosti 17 ríkjum og höfuðborginni Washington. Snjór slydda og fimbulkuldi fylgir storminum, en rammast kveður að rafmagnsleysinu í Mississippi, Louisiana og Texas.Aflýsa þurfti þúsundum flugferða vegna veðursins, þar á meðal flugum Icelandair, þar sem um 1100 manns áttu bókað.