Búið er að undirrita fjórar viljayfirlýsingar um starfsemi á Bakka. Fleiri fyrirtæki hafa sýnt áhuga og vonast er til að einhver ný starfsemi hefjist í lok árs.Nýverið tók til starfa verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka við Húsavík. Það var gert eftir að starfsemi PCC á Bakka lagðist að mestu niður og farið var að leita að öðrum tækifærum á Bakka.Björn Gíslason gegnir starfi verkefnastjóra. „Mitt hlutverk er að fylgja eftir þeim hugmyndum og verkefnum sem fyrirtæki hafa sýnt áhuga á að byggja upp á Bakka og styðja við þau fyrirtæki og þá fjárfesta sem eru á bakvið þau. Sömuleiðis að reyna að þróa og samhæfa iðnaðarsvæðið við þá sýn sem hefur verið gert fyrir það,“ segir Björn sem hóf störf sem verkefnastjóri í síðustu viku. VILJAYFIRLÝSINGAR VIÐ GÍGA42, BAKKAVÍK FISKELDI, CARBFIX O