Stefán Pálsson hefur mikinn áhuga á myndasögum.RÚVStefán Pálsson sagnfræðingur óskar eftir 2. sæti í forvali Vinstri grænna í Reykjavík. Flokkurinn og Vor til vinstri ætla að bjóða fram sameiginlegan lista í borgarstjórnarkosningum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vori til vinstri, leiðir framboðið. Fulltrúar VG verða í 2., 3. og 6. sæti framboðslistans. Fái Stefán 2. sætið í forvalinu yrði hann því í 3. sæti á framboðslistanum.Stefán, sem er varaborgarfulltrúi VG, segir á Facebook að kjörtímabilið hafi verið lærdómsríkt en hann bauð sig fram í fyrsta sinn í síðustu kosningum. Hann segir sameinað framboð geta orðið sterkt afl í borginni sem byggi á róttækri félagshyggju og umhverfisvernd.