Skúli Helgason, sem fékk 1.933 atkvæði í 1. til 4. sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, segir að Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri hafi átt betra skilið eftir að niðurstöður prófkjörsins voru kynntar í gærkvöld.Heiða laut í lægra haldi í oddvitaslag gegn Pétri Marteinssyni, sem var valinn til að leiða flokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum.„Heiða átti betra skilið eftir þau miklu og góðu störf sem hún hefur unnið fyrir okkur jafnaðarmenn undanfarin ár en pólitíkin getur verið miskunnarlaus,“ sagði Skúli í færslu á Facebook.„Ég hef verið spurður hvort ég muni taka sætið og ég mun að sjálfsögðu gera það.“Skúli birti færsluna fyrir hádegi í dag.Skjáskot / Facebook