Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Blæs hressilega syðst á landinu

Þessa dagana er víðáttumikið hæðarsvæði fyrir norðan land sem teygir sig frá Grænlandi yfir til Skandinavíu. Það gerir það að verkum að lægðir komast ekki hina algengu leið til norðurs. Lægðir sunnan við land þrýsta á móti hæðinni og því má búast við allhvössum eða hvössum vindi allra syðst á landinu. Víða á landinu verða 8 til 13 metrar á sekúndu en 13 til 20 syðst.Í athugasemd veðurfræðings segir að hvassir vindstrengir syðst á landinu, til dæmis í Mýrdal og í Öræfum, geti verið varasamir ökumönnum á bílum sem taka á sig mikinn vind.Það verður að mestu bjart um landið vestanvert, annars skýjað og dálitlar skúrir eða él. Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig en um eða undir frostmarki á Norður- og Austurlandi. Fer heldur kólnandi.Hálka eða hálkublettir eru á nokkrum af helstu vegum, einkum fj
Blæs hressilega syðst á landinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta