Breska ríkisstjórnin boðar stofnun nýs lögregluembættis, National Police Service, sem ætlað er að sameina aragrúa stofnana með aðsetur um land allt. Embættinu, sem fengið hefur viðurnefnið breska FBI, er ætlað að taka á flóknustu og alvarlegustu glæpunum. Með því segir ríkisstjórnin að vinnuálagi verði létt af lögregluembættum í héraði þar sem rannsóknir á viðaminni málum hafa iðulega þurft að sitja á hakanum vegna álags af þeim stærri. Innanríkisráðherrann Shabana Mahmood segir mörg lögregluembætti skorta hæfni og úrræði í glímunni við margslungna glæpi á borð við svikastarfsemi, barnaníð á netinu og starfsemi skipulagðra glæpagengja. dMahmook innanríkisráðherra segir að hlutverk þjónustunnar verði að finna og fanga hættulega glæpamenn með mannskap á heimsmælikvarða og beitingu fyrsta flo