Tedros Adhanom Ghebreyesus, framkvæmdastjóri Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar, harmar í færslu á X að Bandaríkin hafi slitið á tengslin við hana. Hann segir ákvörðunina draga úr öryggi Bandaríkjanna og heimsbyggðarinnar allrar auk þess sem réttlæting forsetans fyrir brotthvarfinu standist ekki skoðun.Tilskipun Donalds Trumps Bandaríkjaforseta frá því í janúar á seinasta ári um að slíta á tengsl við Alþjóðaheilbrigðisstofnunina gekk í gildi 20. janúar.Hann rökstuddi brotthvarfið frá stofnuninni meðal annars með því að hún hefði gert hrapaleg mistök í kórónuveirufaraldrinum. Auk þess hefði viðbragðsáætlun hennar byggt á pólitísku skrifræði, runnu undan rifjum ríkja fjandsamlegum bandarískum hagsmunum.Tedros segir að sem sérhæfð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna sé WHO algerlega hlutlaus og þj