Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Írönskum innflytjendum vísað úr landi

Bandaríska ríkisstjórnin ráðgerir að senda 40 íranska innflytjendur úr landi á sunnudaginn, þrátt fyrir ótryggt öryggisástand í Íran eftir fjöldamótmæli síðustu vikur. Írönsk-amerísk félagasamtök, NIAC, gagnrýna þessar áætlanir stjórnvalda.Forseti samtakanna, Jamal Abdi, segir það skjóta skökku við að þessi sömu stjórnvöld lýsi yfir að aðstoð sé á leiðinni en ætli á sama tíma að senda Írani aftur til heimalandsins í hættulegar aðstæður.Ef af verður verða þetta fyrstu brottflutningarnir til Írans frá því að fjöldamótmælin hófust. Meðal þeirra sem á að senda úr landi eru tveir samkynhneigðir menn sem óttast um öryggi sitt og örlög í Íran. Samkynhneigð er refsiverð með dauðarefsingu í Íran.
Írönskum innflytjendum vísað úr landi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta