Donald Trump Bandaríkjaforseti lofsamaði breska hermenn í færslu á samfélagsmiðli sínum, Truth Social, í dag. Er það í kjölfar harðra viðbragða kollega hans Keirs Starmers, forsætisráðherra Bretlands, við ummælum Trumps um Atlantshafsbandalagið.„Hinir FRÁBÆRU og mjög svo HUGRÖKKU hermenn breska konungsveldisins munu ávallt vera með Bandaríkjunum!“ skrifar forsetinn.Trump sagði í viðtali við sjónvarpsstöðina FOX á fimmtudag að varnarbandalagið hefði aldrei gert neitt fyrir Bandaríkin. NATO hafi vissulega sent herlið til Afganistan á sínum tíma en þeir hermenn haldið sig frá vígalínunni.457 breskir hermenn féllu í Afganistan. Starmer sagði í gær að það kæmi sér ekki á óvart að ummæli Trumps hafi sært ástvini þeirra sem féllu eða særðust í Afganistan, og í raun bresku þjóðina í heild sinni.„M