Donald Trump Bandaríkjaforseti varaði kanadísk stjórnvöld við því að gera viðskiptasamning við Kína. Ef af samningnum verður þá segist Trump ætla að skella 100% innflutningstoll á allan vöruinnflutning frá Kanada.Trump ritar á samfélagsmiðil sinn Truth Social að ef Mark Carney, forsætisráðherra Kanada, haldi að hann geti gert Kanada að „skiptistöð“ (e. „drop-off port“) fyrir sendingar á kínverskum vörum inn til Bandaríkjanna, þá hafi hann verulega rangt fyrir sér.„Ef Kanada semur við Kína, þá verður 100% innflutningstollur umsvifalaust lagður á allar kanadískar vörur sem fluttar eru til Bandaríkjanna,“ ritar Trump.Carney fór í opinbera heimsókn til Kína fyrr í mánuðinum. Markmið heimsóknarinnar var meðal annars að móta nýjan samstarfssamning milli ríkjanna tveggja þar sem áhersla er lögð á