Þríhliða friðarviðræðum um endalok innrásarstríðs Rússa í Úkraínu er lokið. Talskona aðalsamningamanns Úkraínu staðfestir það í samtali við AFP. Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, segir margt hafa verið rætt á meðan á viðræðum stóð. Þær hafi verið uppbyggilegar.Væntingar til viðræðna ríkjanna, sem Bandaríkin eiga einnig aðild að, voru hófstilltar þegar þær hófust í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum í gær. Búist var við því að þær stæðu í tvo daga.Þetta eru fyrstu opinberu samningaviðræður um vopnahléstillögur Bandaríkjanna til að binda enda á stríðið sem hefur staðið í nærri fjögur ár. Zelensky sagði fyrr í vikunni samkomulag nánast tilbúið og að þeir Donald Trump Bandaríkjaforseti hefðu náð saman um öryggistryggingar að stríði loknu.Viðræðum verður framhaldið í næstu viku. Þe