Axel Sæland, blómabóndi og formaður garðyrkjudeildar Bændasamtakanna, segir að raforkuverð hafi lækkað til margra garðyrkjubænda um áramótin. Minni nýting hefur verið á raforku síðan Norðurál og PCC Bakki stöðvuðu framleiðslu sína á síðasta ári.Að hans sögn hafa Bændasamtökin ekki beina aðgöngu að málunum. Hver og einn bóndi semji fyrir sig.„Ég get tekið sem dæmi að í mínu tilfelli munar þetta það miklu að við sáum okkur fært að halda vörum óbreyttum um áramótin,“ segir hann.„Þrátt fyrir hækkaða verðlagsvísitölu og launahækkanir sem tóku gildi um áramótin þá sjáum við okkur fært að fara inn í nýtt ár með sömu verð og vonumst til að þetta haldist út árið,“ segir hann.Knútur Rafn Ármann, framkvæmdastjóri og eigandi Friðheima, segir að það hafi legið fyrir rétt fyrir jól að raforkuverð kæmi t