Æðsti herforingi kínverska hersins er til rannsóknar vegna ásakana um gróf aga- og lögbrot. Kínverska varnarmálaráðuneytið greindi frá þessu í dag. Engar frekari upplýsingar um meint brot hershöfðingjans Zhang Youxia eru tilgreindar í tilkynningu ráðuneytisins. Aðeins einn maður er valdameiri í herstjórn Kína, það er Xi Jinping, forseti landsins.Xi hefur að undanförnu gripið til aðgerða til að stemma stigu við spillingu og ótryggð sem hann segir að ríki innan efstu raða kínverska hersins. Í frétt New York Times eru þessar nýjustu vendingar sagðar hafa komið fólki á óvart, þar sem Zhang var talinn trúnaðarvinur forsetans. Hann var varaformaður herráðs kínverska kommúnistaflokksins.Í tilkynningu ráðuneytisins var einnig greint frá því að annar hershöfðingi í herráðinu, Liu Zhenli, væri til r