Einn upplýsingafulltrúi starfar í hverju ráðuneyti á Íslandi. Mismunandi er eftir ráðuneytum hversu margar undirstofnanir eru þar undir og hversu umfangsmiklar þær eru.Þetta kemur fram í svörum ráðherra ráðuneytanna við fyrirspurnum Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Svör við fyrirspurnunum bárust frá lokum nóvember fram í miðjan janúar, það síðasta frá mennta- og barnamálaráðherra barst 19. janúar.Hér fyrir neðan er yfirferð yfir það helsta sem fram kom í svörum ráðuneytanna.Forsætisráðuneytið:Í forsætisráðuneytinu er einn upplýsingafulltrúi. Hjá Hagstofu Íslands starfar yfirmaður deildar samskipta og samstarfs. Hjá Seðlabanka Íslands starfa samskiptastjóri, ritstjóri og upplýsingafulltrúi og þeir starfsmenn sinna fleiri verkefnum en upplýsingamiðlun, samskiptamál