Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Varasamur vindur á Suðurlandi

Búast má við allhvössum eða hvössum vindi alla syst á landinu í dag en mun hægari annars staðar. Í athugasemd veðurfræðings á Veður.is segir að hvassir vindstrengir verði til dæmis í Mýrdal og í Öræfum. Veðrið gæti verið varasamt ökumönnum á bílum sem taka á sig mikinn vind.Það má búast við skúrum eða éljum á stangli suðaustan- og austanlands. Minni háttar él verða á annesjum norðan heiða og á norðanverðum Vestfjörðum en yfirleitt þurrt og bjart í öðrum landshlutum, einkum við Faxaflóa og Breiðafjörð.Hiti verður á bilinu 0 til 7 stig, en kringum frostmark á Norður- og Austurlandi. Búast má við lækkandi hitastigi á næstu dögum.Færð á vegum er víðast hvar með ágætum. Á Holtavörðuheiði og í Bröttubrekku eru hálkublettir. Á Vestfjörðum má finna hálku á Steingrímsfjarðarheiði og Þröskuldum en h
Varasamur vindur á Suðurlandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta