Kostnaður vegna framkvæmda við Kársnesskóla frá árinu 2021 er kominn upp í 7,8 milljarða króna að núvirði með tilliti til verðbólgu samkvæmt opnu bókhaldi bæjarins. Fyrirséð er að kostnaður mun hækka þar sem uppgjöri á öllum verkþáttum er ekki lokið. Upphaflega útboðið miðaði við að kostnaður vegna uppbyggingar skólans yrði rétt um 3,6 milljarðar og átti að ljúka árið 2023....