Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kona handtekin fyrir að kveikja í framhlið dómkirkjunnar í Osló

Lögregla hefur konu í haldi sem talin er hafa ætlað að kveikja í dómkirkjunni í miðborg Oslóar í nótt. Norskur lögreglubíll. Mynd úr safni.NRK/OLE EDVIN TANGEN / TANGEN PHOTONorska ríkisútvarpið hefur eftir lögreglu að tvö hafi verið handtekin við kirkjuna þar sem framhlið hennar stóð í ljósum logum. Ljóst var að bensíni hafði verið skvett á kirkjuna og allt umhverfis hana voru bensínpollar. Skamma stund tók að slökkva eldinn. Öðru hinna handteknu var sleppt fljótlega enda ekki talið viðriðið íkveikjuna. Lögreglan girti af svæði umhverfis kirkjuna um tíma.
Kona handtekin fyrir að kveikja í framhlið dómkirkjunnar í Osló

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta