Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þau sem grófust undir skriðu á tjaldsvæði talin af

Sex eru talin eftir að þau grófust undir skriðu sem féll á tjaldsvæði við kulnað eldfjall norðanvert á Nýja Sjálandi á fimmtudag. Enginn er lengur talinn lífs undir jarðveginum.AP/Pool New Zealand Herald / Corey FlemingTveggja kvenna um sjötugt er saknað, fimmtugrar konu, tveggja 15 ára stúlkna og tvítugs Svía. Fjöldi fólks hefur leitað í leðjunni stanslaust síðan skriðan féll en lögregluyfirvöld segjast nú hætt að leita að lifandi fólki. Lögreglustjórinn Tim Anderson kveðst afar sorgmæddur yfir örlögum fólksins og býst við að marga daga taki að finna líkin. Tveir fórust á fimmtudag þegar skriða féll í nágrannahéraðinu Papamoa. Forsætisráðherrann Christopher Luxon hefur vottað ættingjum fólksins samúð og heitir fullum stuðningi.
Þau sem grófust undir skriðu á tjaldsvæði talin af

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta