Yfir helmingur íbúa sjö Evrópusambandsríkja sér Donald Trump sem „óvin Evrópu“ ef marka má niðurstöður könnunar sem birt var í gær. Könnunin var gerð dagana 13. til 19. janúar í Frakklandi, Belgíu, Þýskalandi, Ítalíu, Spáni, Póllandi og Danmörku, með þátttöku yfir þúsund íbúa hvers lands.AFP-fréttaveitan greinir frá. Þá hafði Bandaríkjaforseti hótað því að yfirtaka Grænland, jafnvel með hervaldi þætti honum þurfa. Um það bil 51 prósent svarenda sögðu Trump fjandmann Evrópu, 39 af hundraði álitu hann hvorki vin né óvin og átta prósent sögðust telja hann vinveittan álfunni.Danir eru sérstaklega á því að Trump sé lítt vinveittur Evrópu þar sem 58 af hverjum hundrað svöruðu þannig.Alls sögðu 44 prósent svarenda í löndunum sjö Trump hegða sér eins og einræðisherra og jafnhátt hlutfall sagði han