Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í minnst fjórtán ríkjum Bandaríkjanna vegna snjókomu og fimbulkulda alla helgina. Veðurfræðingar vara við mikilli hálku, lélegu skyggni og að tré kunni að falla undan snjóþunganum. Óttast er að straumrof geti varað marga daga. Þegar er tekið að snjóa í Texas, Oklahóma og Kansas en búist er við að ástandið verði verst í Louisiana, Mississippi og Tennessee. Í gær mældist 45 gráðu frost í Suður- og Norður-Dakóta og Minnesota. YFIR 200 MILLJÓNIR FINNA FYRIR VEÐRINU Yfir tvö hundruð milljónir búa á illlviðrissvæðinu sem teygir sig frá Klettafjöllum sunnanverðum, yfir Miðvesturríkin að strönd Atlantshafsins. Donald Trump forseti kveðst upplýstur um ástandið og segir ríkisstjórnina skipuleggja viðbrögð ásamt yfirvöldum einstakra ríkja. Almannavarnir séu jafn