Kanada hefur opnað ræðismannsskrifstofu í grænlenska höfuðstaðnum Nuuk. Hún deilir húsnæði með þeirri íslensku í Nýlenduhöfn, elsta hverfi Nuuk þar sem finna má sögulegar byggingar, söfn og veitingastaði.KNR greinir frá þessu og segir að til hafi staðið að opna skrifstofuna formlega í nóvember en því hafi verið frestað þar sem kanadíski utanríkisráðherrann Anita Anand komst ekki til Grænlands vegna veðurs.Hún ætlaði að vera viðstödd ásamt utanríkisráðherrum Grænlands og Danmerkur, þeim Vivian Motzfeldt og Lars Løkke Rasmussen. Anand sagði þá að Kanada væri mikið í mun að sinna hlutverki sínu sem mikilvægt norðurslóðaríki á tímum óstöðugleika á alþjóðasviðinu.Svo fór að Virginia Mearns, sendiherra Kanada á Norðurslóðum, tilkynnti um opnun skrifstofunnar á fiskveiðiráðstefnu í Iqaluit, höfuð