Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri gengst við því að hafa sent skilaboð í vikunni þar sem hún sagði Pétur Marteinsson, andstæðing sinn í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík, frægan karl með enga reynslu.„Eftir allmikla leit verð ég að gangast við að hafa sent þennan póst fyrr í vikunni. Ég hef það eitt mér til afsökunar að á undanförnum 3 vikum hafa líklega þúsundir skilaboða farið frá mér til félaga í flokknum, auk vina og kunningja,“ skrifar Heiða á Facebook-síðu sinni.Hún segist ekki hafa kannast við að hafa sent umrædd skilaboð þegar hún var fyrst spurð um málið og að hún hafi ekki séð til hvers þau voru send. Nú hafi hún fundið skilaboðin, sem séu hluti af lengra samtali milli hennar og þeirrar sem fékk póstinn.Sú hafi ávallt deilt skoðunum Heiðu á jafnréttismálum og Heiða sjál