Það hefur verið annasamt í verslunum í aðdraganda bóndadagsins og augljóst að margar nýttu sér netverslanir til að finna bóndadagsgjöfina.Í fyrstu prentuðu heimildum um bóndadaginn, sem eru í þjóðsagnasafni Jóns Árnasonar frá 1864, segir að menn hafi átt að fara fyrstir á fætur þann morgun sem þorri gekk í garð.Áttu þeir að fara ofan og á skyrtunni einni, vera bæði berlæraðir og berfættir, en fara í aðra skálmina og láta hina lafa og draga hana á eftir sér á öðrum fæti, ganga svo til dyra, ljúka upp bæjarhurðinni, hoppa á öðrum fæti í kringum bæinn, draga eftir sér brókina á hinum og bjóða þorra velkominn í garð eða til húsa.