Starfandi framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands segir mikinn áhuga á millilandaflugi til og frá Akureyri þó að fyrirætlanir Niceair um leiguflug hafi ekki gengið að óskum. Hann vonar að takist að hefja flug síðar á árinu.Á þriðjudag var áætlaðri jómfrúarferð Niceair til Kaupmannahafnar aflýst vegna dræmrar sölu. Forsvarsmaður félagsins segir stefnt á að reyna aftur flug síðar á árinu en félagið hefur engar flugvélar til umráða sjálft og skipuleggur því eins konar leiguflug. BYGGJA EKKI UPP VÆNTINGAR EN SEGJA MARKAÐINN TIL STAÐAR Halldór Óli Kjartansson, starfandi framkvæmdastjóri Markaðsstofu Norðurlands, segir markaðsstofuna ekki hafa haft beina aðkomu að þessu verkefni eins og mörgum öðrum sem tengjast flugi til Akureyrar. Það sé alltaf miður þegar verkefni gangi ekki upp.„Við hor