Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

„Þessu ofbeldi verður að linna og það strax“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segist vonast til þess að aukafundur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna veiti rannsóknarnefnd víðtæka heimild til að rannsaka mannréttindabrot í Íran. Ísland er eitt 47 kjörinna aðildarríkja mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna og átti frumkvæði að aukafundi um stöðu mannréttinda í Íran sem haldinn verður síðdegis í dag.„Þessi aukafundur mannréttindaráðs Sameinuðu þjóðanna er mjög mikilvægur. Hann sendir um leið skýr skilaboð til yfirvalda í Íran um leið og alþjóðasamfélagið bæði fordæmir og hafnar afdráttarlaust þessu gegndarlausa ofbeldi sem almenningur í Íran hefur mátt sæta,“ segir Þorgerður Katrín.„Það sjá allir og allt skynsamt fólk að þessu ofbeldi verður að linna og það strax.“Almenningur í Íran hefur mótmælt stjórnvöldum frá því um
„Þessu ofbeldi verður að linna og það strax“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta