Vinstri græn, VG, ætla að halda forval um efstu þrjá fulltrúa hreyfingarinnar í sæti á lista Vor til vinstri í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Forvalið verður með rafrænum hætti dagana 20. til 22. febrúar. Þetta kemur fram í tilkynningu. VG í Reykjavík og Vor til vinstri ætla að bjóða fram sameiginlegan lista í borgarstjórnarkosningunum. Sanna Magdalena Mörtudóttir, Vori til vinstri, leiðir framboðið. Fulltrúar VG verða í 2., 3. og 6. sæti.Frestur til að tilnefna frambjóðendur rennur út á miðnætti 25. janúar og framboðsfrestur rennur út á miðnætti 1. febrúar. Hægt er að senda tilnefningar á netfangið kjorstjorn@vg.is