Lögreglan í Suffolk-sýslu í New York í Bandaríkjunum fór í heldur óvenjulegt útkall á dögunum. Þegar á vettvang var komið bjuggust lögreglumennirnir sennilega frekar við bankaræningjum en í staðinn mætti þeim dádýrstarfur sem hafði brotist inn um glugga á bankanum og sat fastur.Tarfurinn var greinilega skelkaður, rakst í veggi og húsgögn og olli nokkru tjóni. Það tók lögregluna dágóðan tíma að klófesta dýrið en á endanum festist tarfurinn inni á skrifstofubás. Lögreglumennirnir teymdu tarfinn út um glugga á bankanum og af þessum myndum að dæma virðist hann hafa verið frelsinu feginn.