Óvenjufá morðmál komu til kasta lögreglunnar í Noregi í fyrra. Í frétt NRK, norska ríkisútvarpsins, segir að 18 morðmál með 19 fórnarlömbum hafi verið til rannsóknar, samanborið við 28 mál að meðaltali árin 1990 til 2025. Forstöðumaður ofbeldisglæpadeildar norsku rannsóknarlögreglunnar, Kripos, sagði að þrátt fyrir verulegan samdrátt í fjölda mála sé enn of snemmt að segja til um hvort þetta sé til merkis um langtímaþróun. Fjórir af fimm gerendum í morðmálum eru karlmenn, og 58% fórnarlamba voru konur. 70 prósent gerenda höfðu áður hlotið dóma.NTB SCANPIX / EPA-EFE