Aðalsteinn Leifsson nýtur mests stuðnings þeirra Reykvíkinga sem tóku afstöðu í könnun Maskínu um hver sé best til þess fallinn að leiða lista Viðreisnar í Reykjavík í komandi sveitarstjórnarkosningum. Samkvæmt niðurstöðum telja 52 prósent Aðalstein bestan kost, en 35,9 prósent nefna Björgu Magnúsdóttur og 12,1 prósent Róbert Ragnarsson. Könnunin var gerð af Maskínu fyrir Aðalstein sjálfan, sem er einn frambjóðenda...