Netverslun jókst um rúm þrettán prósent í nóvember í fyrra miðað við sama mánuð 2024 og erlend netverslun í nóvember nam rúmlega þremur komma sex milljörðum króna. Þetta kemur fram í nýrri samantekt Rannsóknaseturs verslunarinnar. Fatnaður er sem fyrr stærsti einstaki liður erlendrar netverslunar og nemur rúmlega einum og hálfum milljarði. Á sama tíma dróst innlend fataverslun saman um tæplega þrjú prósent á fyrstu tíu mánuðum 2025.