Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump segir stóran flota stefna hraðbyri í átt að Persaflóa

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir bandarískan herskipaflota stefna í átt að Persaflóa. Hann dró í seinustu viku til baka yfirlýsingar um hernaðaraðgerðir gegn Íran vegna harðra og mannskæðra aðgerða klerkastjórnarinnar gegn mótmælendum í landinu. Nú segir hann stóran flota stefna í átt að Íran, til öryggis og til að þrýsta á Íransstjórn. „Sjáum til hvað gerist,“ sagði Trump við blaðamenn um borð í forsetaþotunni á heimleið frá alþjóðaefnahagsráðstefnunni í Davos. „Við fylgjumst með Íran. Ég vona samt að ekkert gerist, að við þurfum ekki að nota flotann,“ bætti forsetinn við. Hann áréttaði það mat sitt að hótanir um valdbeitingu hefðu komið í veg fyrir á níunda hundrað aftaka mótmælenda í Íran og kvaðst reiðubúinn til viðræðna við stjórnvöld. Trump hefur oft látið í veðri vaka að lagt ve
Trump segir stóran flota stefna hraðbyri í átt að Persaflóa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta